Emma, Amanda og Hildur með U16 á UEFA Development Tournament

Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U16 ára kvenna valdi á dögunum hópinn sem tekur þátt í UEFA Development Tournament sem fer fram í Króatíu dagana 6. - 12. maí næstkomandi. 

Í hópnum eru þrjár Valsstelpur, þær Emma Steinsen Jónsdóttir, Amanda Jacobsen Andradóttir og Hildur Björk Búadóttir. Við óskum stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á mótinu.