Þriðji flokkur karla áfram í bikarnum

Í gærkvöldi áttust við Valur og Keflavík í 3. flokki karla. Um var að ræða 8. liða úrslit bikarkeppni KSÍ. það er skemmst frá því að segja að Valur hafði sigur 3 - 2 í háspennuleik þar sem að dramatíkin og baráttan voru í algleymingi. Mörk Vals skoruðu þeir Kolbeinn Arnórsson, Sindri Scheving og Oddur Tyrfingur. En það var mál manna að fyrst og fremst hefið það verið sterk liðsheild og sterkt Valshjarta sem að skóp þennan sigur. Við óskum strákunum til hamingju með þennan sigur og óskum þeim góðs gengis í framhaldinu













