Símamót
_news_main.jpg)
Um síðustu helgi var haldið Símamótið, knattspyrnumót fyrir stelpur í 5., 6. og 7.flokki á vegum Breiðabliks í Kópavogi. Mótið var einstaklega vel skipulagt og þótti heppnast vel í alla staði. Valsstúlkur tóku að sjálfsögðu þátt og voru félagi sínu svo sannarlega til mikils sóma.
5.flokkur sendi 3 lið til keppni og stóðu allar stelpurnar sig frábærlega. A- og B-liðin komust alla leið í úrslitaleiki mótsins og vann B-liðið úrslitaleikinn sinn. Því miður tapaði A-liðið sínum leik með marki sem kom 30 sek fyrir leikslok en stelpurnar börðust engu að síður hetjulega allan leikinn. C-liðið á einnig hrós skilið fyrir mikinn dugnað og góð tilþrif þó svo að þær hafi ekki náð eins langt og hin liðin að þessu sinni. Þess má svo til gamans geta að leikmaður Vals, Diljá Hilmarsdóttir, var valin í "landslið 5.flokks" sem lék á móti "Pressuliðinu" í skemmtilegum leik í lok mótsins. Til hamingju með það, Diljá! Þjálfari flokksins er Margrét Magnúsdóttir.
6.flokkursendi 2 lið til keppni. Stelpurnar stóðu sig að
sjálfsögðu líka frábærlega og komst A-liðið í úrslitaleik
mótsins. Hann endaði 1-1 á móti Víkingi og deildu liðin því
fyrsta sætinu. Þrátt fyrir að gengi B-liðsins hafi ekki verið eins
gott þá eiga stelpurnar hrós skilið fyrir
að hafa lagt sig allar fram og haft gaman að því að spila fótbolta
og vera saman! Þjálfari flokksins er Birkir Örn Gylfason.
7.flokkursendi 3 lið til keppni að þessu sinni. A- og C-liðin komust alla leið í úrslitaleikina og vann C-liðið sinn leik. A-liðið deildi hins vegar fyrsta sætinu með FH. Stelpurnar í B-liðinu stóðu sig einnig virkilega vel þrátt fyrir að árangurinn hafi ekki verið eins góður og hinna liðanna og er gaman að segja frá því að hópurinn í heild sinni var einstaklega prúður og góður og þóttu stelpurnar spila flottan fótbolta. Þjálfari liðsins er Steinunn Sara Helgadóttir.
Við óskum stelpunum innilega til hamingju með árangur helgarinnar og óskum þeim góðs gengis það sem eftir lifir sumartímabilsins!













