Vetrarstarf Vals 2019-20 Valsrútan byrjuð að ganga

Æfingar hefjast samkvæmt stundatöflum, mánudaginn 26. ágúst.

Æfingatöflur fyrir veturinn 2019-2020 er að finna hér:

Þá mun Valsrútan einnig fara af stað í dag en hún sækir iðkendur í 1.-4. bekk í frístund í eftirfarandi skóla: Háteigsskóla, Ísaksskóla, Austurbæjarskóla og Hlíðaskóla.

Minnum foreldra á að börn sem ekki eru skráð í rútu verða ekki tekin með og því nauðsynlegt að ganga frá skráningu ef iðkendur eiga að fara með rútunni. 

Skráning í bæði rútu og í námskeið (fótbolta, handbolta, körfubolta) fer fram á skráningarsíðu félagsins www.valur.felog.is  og hvetjum við foreldra til að ganga frá skráningu og greiðslu sem allra fyrst. Við minnum foreldra einnig á að þeir gætu átt rétt á frístundastyrk en til þess að nota hann þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli á sömu síðu. 

Algengar spurningar

Getur iðkandi fengið að prófa í nokkur skipti áðurn en gengið er frá skráningu?

Já - það er í lagi að prófa 2-3 sinnum áður en gengið er frá skráningu.

Er barnið mitt í fyrri eða seinni rútu frá frístundaheimili?

Ef æfing iðkanda er kl. 15:00 þá fer iðkandi í fyrri rútu. Ef æfing iðkanda er kl. 15:50/16:00 þá fer barnið í seinni rútu. 

Hvernig fer barnið mitt í rútuna?

Starfsfólk frístundarútu safnar saman krökkum úr frístund og leiðir þau að rútunni. Iðkendur sem ekki eru skráðir í frístund þurfa að koma sér í rútu sjálfir. Starfsmaður Vals tekur á móti krökkum í rútu og sér til þess að þau séu spennt í belti o.þ.h.

Eftirfarandi skilmálar gilda um æfingagjöld hjá öllum deildum Vals

 

  • Skilyrði er að æfingagjöld séu greidd í upphafi tímabils
  • Greiðsla æfingagjalda er forsenda fyrir þátttöku á æfingum og mótum flokksins.
  • Iðkendur hjá Val hafa ekki þátttökurétt á mótum nema gengið hafi verið frá æfingagjöldum.
  • Allar skráningar á námskeið eru endanlegar og ekki hægt að afskrá/afpanta á netinu.
  • Skrá þarf iðkendur í iðkendakerfi Nóra þar sem forráðamenn geta farið inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum og ráðstafað frístundastyrk eða gengið frá greiðslu með öðrum hætti.
  • Skráning þarf að vera lokið fyrir (1. október) fyrir haustönn og (1. febrúar) fyrir vorönn. Sé ekki búið að ganga frá greiðslu fyrir þann tíma verður sendur greiðsluseðill til forráðamanna. Ef forráðamaður óskar eftir að breyta þeim greiðslumáta leggst 1.500 kr umsýslugjald ofaná gjöldin.
  • Ef iðkandi byrjar æfingar eftir að tímabil hefst þarf að senda tölvupóst á valur@valur.is með nafni, kennitölu og upphafsdagsetningu. Hægt er þá að aðlaga upphæð æfingagjalda að því hvenær æfingar hófust.
  • Ef iðkandi hefur mætt á æfingar í tvær vikur og ekki hefur verið gengið frá skráningu verður sjálfkrafa sett inn skráning í iðkendakerfi Vals og sendur greiðsluseðill fyrir æfingagjöldum. Ef forráðamaður óskar eftir að breyta þeim greiðslumáta leggst 1.500 kr umsýslugjald ofaná gjöldin.
  • Æfingagjöld eru ekki endurgreidd eftir að námskeið er hafið. Hægt er að sækja um undanþágu frá þessu ef gild ástæða er fyrir úrsögn, t.d. búferlaflutningar eða meiðsli/veikindi.
  • Kjósi iðkandi að hætta æfingum verður úrsögn að berast með tölvupósti á valur@valur.is . Það er á ábyrgð forráðamanns að tilkynna úrsögn til skrifstofu, tilkynning til þjálfara verður ekki tekin gild.
  • Ráðstafaður frístundastyrkur sveitarfélaga er ekki endurgreiddur.
  • Ekki má flytja frístundastyrk milli systkina né milli ára.
  • Einungis er hægt að ráðstafa frístundastyrk á viðeigandi námskeið meðan það er í gildi.
  • Allir greiðsluseðlar eru í kröfukaupum hjá Greiðslumiðlun og því verða forráðamenn að snúa sér þangað ef þeir lenda í vanskilum eða vilja semja um greiðslukjör eftirá.
  • Mikilkvægt er að hafa samband við Íþróttafulltrúa ef um fjárhagserfiðleika er að ræða. Hægt er að finna úrlausnir til að iðkandi geti haldið áfram íþróttaiðkun, t.d. með umsókn um styrk í Friðrikssjóð.