Fanney, Hildur, Katla og Sigríður Th í úrtakshóp U16
Jörundur Áki Sveinsson þjálfari U16 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu valdi á dögunum hóp sem kemur saman til úrtaksæfinga dagana 29.-31. janúar næstkomandi.
Í hópnum eru þrjár stelpur úr Val, þær Fanney Inga Birkisdóttir, Hildur Björk Búadóttir og Katla Tryggvadóttir. Þeim til viðbótar bættist Sigríður Th. Guðmundsdóttir í hópinn.
Við óskum stelpunum til hamingju með valið og góðsgengis á æfingunum sem fara fram í Skessunni.