Erum við að leita af þér? Starfsmaður í frístundavagn Vals

Frístundavagn Vals keyrir börn í 1. til 4. bekk milli skóla og Hlíðarenda frá kl.13:45-15:45 á daginn. Hlutverk starfsmanns í vagninum er taka á móti börnum í frístundavagninn og aðstoða þau við komuna í vagninn.

 

Starfsmaður ber ábyrgð á öryggi, aga og vellíðan barna í vagninum og tryggir jákvæð samskipti. Starfsmaður sér einnig til þess að börn séu í öryggisbeltum og taki með sér töskur og aðrar eigur úr vagninum.

 

Um er að ræða um hlutastarf og er vinnutími frá klukkan 13:45-15:45 virka daga. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

 

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Örn Arnarson íþróttafulltrúi Vals í gegnum netfangið gunnar@valur.is