Fjórar Valsstelpur í æfingahóp U17

Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U17 kvenna valdi á dögunum leikmannahóp sem kemur saman til æfinga 25.-27. janúar næstkomandi. 

Í hópnum eru fjórir Valsarar - Þær Aldís Guðlaugsdóttir, Fanney Inga Birkisdóttir, Hildur Björk Búadóttir og Katla Tryggvadóttir. Við óskum stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.