Langtímasamningur í höfn milli Billboard og Vals
Knattspyrnufélagið Valur og Billboard ehf. hafa
skrifað undir langtíma-
samstarfssamning um rekstur auglýsingaskiltis við Hlíðarenda.
Tveir skjáir eru á
skiltinu og verður þeim þriðja bætt við síðar á þessu ári.
"Það er algjörlega frábært að fá Valsmenn til
samstarfs við okkur. Þetta er sú
viðbót sem okkur vantaði til að ná til allra anga
höfuðborgarsvæðisins með stóru
skjáunum okkar. Í sumar munum við breyta nokkrum skiltum úr
flettiskiltum
í LED og þessi staðsetning smellpassaði við
þau áform okkar að geta birt
skilaboð fyrir sem flesta höfuðborgarbúa. Skiltið við Hlíðarenda
er það skilti sem
er staðsett vestast í borginni og það hentaði okkar áformum afar
vel", segir
Vésteinn Gauti Hauksson,
framkvæmdastjóri Billboard ehf.
Skjáir Valsmanna færast þannig undir
umhverfismiðlanet Billboard og Buzz, sem
telur nú 20 stóra LED skjái, 50 flettiskiltafleti,
260 LED skjái í biðskýlum
strætisvagna og 350 upplýsta fleti fyrir prentuð plaköt í
biðskýlum strætisvagna.
Billboard er nú þegar í samstarfi
við fjölmörg íþróttafélög
á suðvesturhorni landsins.
"Auglýsendur geta að sjálfsögðu náð til nánast allra
höfuðborgarbúa daglega
með skjáum okkar í biðskýlunum en nú getum við boðið upp
á nánast
sömu dekkun með stóru skiltunum líka. Það eru frábærar
fréttir fyrir
auglýsendur", segir Vésteinn.