Sumarstarf Vals - Skráning opnar á Sportabler 29. apríl

  • Sumarbúðir í Borg fyrir 6-11 ára - 6. námskeið í júní og júlí
  • Knattspyrnuskóli Vals fyrir 6-10 ára - 6. námskeið í júní og júlí
  • Handboltaskóli Vals fyrir 6 - 11 ára - 3 námskeið í júní & ágúst
  • Körfuboltaskóli Vals fyrir 6-11 ára - 3 námskeið í júní & ágúst
  • Nánari upplýsingar um námskeiðin má finna hér að neðar á síðunni

Skráning opnar 29. apríl klukkan 15:00 - Smelltu hér til að skrá iðkanda á námskeið

Sumartafla 2021 - Fótbolti (tekur gildi 14. júní)

Sumartafla 2021 fótbolti

*Smelltu á mynd til að sjá stærri

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Sumarbúðir í Borg | Sumarið 2021

 

Hinar margrómuðu Sumarbúðir í Borg verða á sínum stað þetta sumarið en um er ræða sumarleikjanámskeið sem býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn á aldrinum 6-11 ára. Á dagskrá verður meðal annars:

  • Vettvangsferðir og ratleikir
  • Fyrirtækjaheimsóknir
  • Strand- og fjöruferðir
  • Safnaferðir
  • Bókasafnsferðir
  • Pylsupartí í lok hvers námskeiðs

Lögð er áhersla á fjölbreytta íþróttaiðkun þar sem unnið er með skyn- og hreyfiþroska barna í gegnum fjölbreytta leiki.

Helsta markmið námskeiðsins er að veita börnunum fjölbreytt íþróttauppeldi og byggja upp hjá þeim heilbrigðar og hollar lífsvenjur í öruggu, jákvæðu og skemmtilegu umhverfi.

Líkt og undanfarin ár geta þátttakendur valið um að fá heitan mat í hádeginu og er rík áhersla lögð á hollan og góðan heimilismat. Hægt er skrá þátttakendur í  hálft námskeið með eða án hádegismatar. Með þeim hætti geta þátttakendur t.d. verið í knattspyrnu-handbolta- eða körfuboltaskóla Vals fyrir hádegi og í Sumarbúðunum eftir hádegi.

 

Dagsetningar Sumarbúða í Borg 2021

Námskeið 1: 14.júní-18.júní

Námskeið 2: 21.júní-25.júní

Námskeið 3: 28.júní-2.júlí

Námskeið 4: 5.júlí-9.júlí

Námskeið 5: 12. Júlí - 16. júlí

Námskeið 6: 19. júlí - 23. júlí

 

Verð per námskeið (verð miðast við fullt námskeið sem er 5 dagar):

  • Sumarbúðir, allur dagurinn með hádegismat..................17.500 
  • Sumarbúðir, allur dagurinn án hádegismatar..................12.000
  • Sumarbúðir fyrir hádegi án hádegismatar.......................6.000
  • Sumarbúðir eftir hádegi án hádegismatar.......................6.000

 

Hagnýtar upplýsingar um Sumarbúðir í Borg

  • Fyrir börn á aldrinum 6-11 ára
  • Milli 9 og 16 alla virka daga eftir að skóla lýkur í júní og í júlí
  • Gæsla fyrir börn frá 8-9 og 16-17
  • Hægt að kaupa hádegismat fyrir þátttakendur 
  • Hægt er að boltaskólum Vals fyrir hádegi og sumarbúðum eftir hádegi
  • Ef þú lendir í vandræðum með skráningu sendu tölvupóst á gunnar@valur.is eða hringdu í 414-8005 

 

Dagskrá: www.valur.is/born-unglingar/sumarbudir-dagskra (birtist þegar nær dregur námskeiði)

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - 

Knattspyrnuskóli Vals | Sumarið 2021

Knattspyrnuskóli Vals verður líkt og undanfarin sumur starfræktur fyrir hádegi og er ætlaður börnum 6-10 ára. Í knattspyrnuskólanum kynnast börnin grunntækni í knattspyrnu í gegnum leik og lögð er áhersla á að fyrstu kynni barnanna af íþróttinni séu jákvæð og skemmtileg.

Skipt verður í hópa eftir aldri og unnið í litlum hópum til að hámarka fjölda snertinga við boltann hjá hverjum iðkanda. Unnið er eftir kennsluskrá knattspyrnudeildar Vals sem leggur áherslu á að æfingar barna á þessum aldri séu fjölbreyttar og stuðli að bættum skyn- og hreyfiþroska.

Reyndir þjálfarar og leikmenn Vals miðla reynslu sinni á faglegan og skemmtilegan hátt. Valur leggur áherslu á að skapa kjöraðstæður fyrir iðkendur til að njóta sín og hafa gaman af leik og keppni, óháð aldri og getu.

Í boði er að vera í knattspyrnuskóla fyrir hádegi og Sumarbúðum í Borg eftir hádegi. Hádegisverður er ekki innifalinn í verði en hægt er að kaupa heitan hádegisverð. 

Kennsla í Knattspyrnuskólanum fer fram sem hér segir: 

  • Mánudaga: 10:30-12:00 
  • Þriðjudaga: 10:30-12:00
  • Miðvikudaga: 10:30-12:00
  • Fimmtudaga: 10:30-12:00 
  • Föstudaga: 09:00-12:00

 

Dagsetningar Knattspyrnuskólans

Námskeið 1: 14.júní-18.júní (ekki kennt 17. júní)

Námskeið 2: 21.júní-25.júní

Námskeið 3: 28.júní-2.júlí

Námskeið 4: 5.júlí-9.júlí

Námskeið 5: 12. Júlí - 16. júlí

Námskeið 6: 19. júlí - 23. júlí

 

Verð per námskeið:

  • Knattspyrnuskóli Vals ................................................. 6.000
  • Knattspyrnuskóli með hádegismat............................... 11.500 
  • Knattspyrnuskóli og Sumarbúðir með hádegismat......... 17.500
  • Knattspyrnuskóli og Sumarbúðir án hádegismatar......... 12.000

  

Hagnýtar upplýsingar um Knattspyrnuskóla Vals

  • Fyrir börn á aldrinum 6-10 ára
  • Milli 10:30 og 12:00 mán-fim & 9:00-12:00 fös
  • Gæsla fyrir börn frá 8-9 og 16-17
  • Hægt að vera í knattspyrnuskóla fyrir hádegi og Sumarbúðunum eftir hádegi
  • Ef þú lendir í vandræðum með skráningu sendu tölvupóst á gunnar@valur.is eða hringdu í 414-8005 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - 

Sumarbúðir & Boltaskóli að eiginvali (NÝTT - Fyrir hádegi í 3 vikur)

Sumarbúðir og boltaskóli að eiginvali er nýtt námskeið sem er hugsað fyrir iðkendur á aldrinum 6-11 ára sem ekki eru æfa knattspyrnu.

Iðkendur á þessu námskeiði byrja í sumarbúðum í borg frá 9:00-10:30 og geta valið um hvort þeir fara í handbolta, fótbolta eða körfuboltaskóla Vals frá 10:30-12:00.

Kennsla í sumarbúðum & boltaskóla Vals fer fram sem hér segir:

  • Mánudaga - föstudaga: 09:00-12:00 

 

Dagsetningar Sumarbúða & Boltaskóla Vals:

Námskeið 1: 14.júní-18.júní (ekki kennt 17. júní)

Námskeið 2: 21.júní-25.júní

Námskeið 3: 28.júní-2.júlí

 

Verð per námskeið:

  • Sumarbúðir & boltaskóli ............................................. 7.500
  • Sumarbúðir & boltaskóli með hádegismat..................... 13.000 

  

Hagnýtar upplýsingar um Sumarbúðir & Boltaskóla

  • Fyrir börn á aldrinum 6-10 ára
  • Milli 09:00 og 12:00 mánudaga - föstudaga
  • Gæsla fyrir börn frá 8-9 og 16-17
  • Hægt að vera í Sumarbúðum í borg eftir hádegi
  • Ef þú lendir í vandræðum með skráningu sendu tölvupóst á gunnar@valur.is eða hringdu í 414-8005 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - 

Handboltaskóli Vals 2021

Um er að ræða námskeið fyrir krakka í  6-11 ára bæði stelpur og stráka þar sem haldið verður áfram að kenna grunnatriði handboltans í gegnum leiki og skemmtilegar boltaæfingar.

Farið verður yfir öll helstu grunnatriði handboltans ásamt því að að spila og fara í allskonar skemmtilega leiki. 

Frábært námskeið fyrir bæði þá sem vilja prófa nýja íþrótt og þá sem hafa æft áður og vilja nýta sumarið í að bæta sig.

Námskeiðið verður haldið samhliða Sumarbúðunum í borg í júní og júlí svo krakkar geta verið í körfuboltaskólanum fyrir hádegi og Sumarbúðirnar á eftir hádegi. 

 

Kennsla í handboltaskólanum í júní og júlí fer fram sem hér segir: 

  • Mán-fim: 10:30-12:00 
  • Föstudaga: 09:00-12:00

Kennsla í handboltaskólanum í ágúst fer fram sem hér segir: 

  • Mán-fim: 10:10-11:50 
  • Föstudaga: 09:00-12:00

 

Dagsetningar Handboltaskólans 

Námskeið 1: 14.júní - 18.júní

Námskeið 2: 21.júní - 25.júní

Námskeið 3: 28.júní - 2.júlí

 

Verð per námskeið:

  • Handboltaskóli Vals ................................................. 6.000
  • Handboltaskóli með hádegismat............................... 11.500 (*einungis á júní/júlí námskeiðum)

 

Ágúst námskeið 

Ágúst-námskeið 4: 3. ágúst - 6. ágúst 

Ágúst-námskeið 5: 9. ágúst -13. ágúst 

Ágúst-námskeið 6: 16. ágúst -20. ágúst 

  

Verð per námskeið:

  • Handboltaskóli Vals ................................................. 6.500 (*miðast við fullt námskeið 5 daga)

Hagnýtar upplýsingar um Handboltaskóla Vals

  • Fyrir börn á aldrinum 6-11 ára
  • Hægt er að vera í handboltaskóla fyrir hádegi og sumarbúðum eftir hádegi (í júní og júlí).
  • Hægt er að kaupa hádegismat með námskeiðinu.
  • Ef þú lendir í vandræðum með skráningu sendu tölvupóst á gunnar@valur.is eða hringdu í 414-8005 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - 

Körfuboltaskóli Vals | 6-11 ára 

Körfuboltaskóli Vals er fyrir áhugasama körfuboltakrakka á aldrinum 6-11 ára. Um er að ræða skemmtilegt námskeið fyrir bæði stelpur og stráka, hvort sem iðkendur eru byrjendur eða lengra komnir.

Farið verður yfir öll helstu grunnatriði körfuboltans ásamt því að að spila og fara í allskonar skemmtilega leiki. 

Frábært námskeið fyrir bæði þá sem vilja prófa nýja íþrótt og þá sem hafa æft áður og vilja nýta sumarið í að bæta sig.

Námskeiðið verður haldið samhliða Sumarbúðunum í Borg í júní svo krakkar geta verið í körfuboltaskólanum fyrir hádegi og Sumarbúðirnar á eftir hádegi. 

Kennsla í körfuboltaskólanum í júní og júlí fer fram sem hér segir: 

  • Mán-fim: 10:30-12:00 
  • Föstudaga: 09:00-12:00

Kennsla í körfuboltaskólanum í ágúst fer fram sem hér segir: 

  • Mán-fim: 10:10-11:50 
  • Föstudaga: 09:00-12:00

Dagsetningar Körfuboltaskólans 

Námskeið 1: 14.júní - 18.júní

Námskeið 2: 21.júní - 25.júní

Námskeið 3: 28.júní - 2.júlí

Verð per námskeið:

  • Körfuboltaskóli Vals ................................................. 6.000
  • Körfuboltaskóli með hádegismat............................... 11.500 (*einungis á júní/júlí námskeiðum)

 

Námskeið í ágúst:

Námskeið 4: 3. ágúst -6. ágúst (4 dagar)

Námskeið 5: 9. ágúst -13. ágúst (5 dagar)

Námskeið 6: 16. ágúst - 20. ágúst (5 dagar)

Verð per námskeið:

  • Körfuboltaskóli Vals ................................................. 6.500 (*miðast við fullt námskeið 5 daga)

   

Hagnýtar upplýsingar um Körfuboltaskóla Vals

  • Fyrir börn á aldrinum 6-11 ára
  • Gæsla fyrir börn frá 8-9 og 16-17 (í júní/júlí)
  • Hægt að vera í Körfuboltaskóla fyrir hádegi og Sumarbúðunum eftir hádegi (í júní/júlí)
  • Ef þú lendir í vandræðum með skráningu sendu tölvupóst á gunnar@valur.is eða hringdu í 414-8005

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -