Valur 110 ára, þriðjudaginn 11. maí 2021
Knattspyrnufélagið Valur var stofnað 11. maí 1911 og fagnar í dag 110 ára afmæli.
Venju samkvæmt verður lagður blómsveigur að styttu séra Friðriks Friðrikssonar að Hlíðarenda klukkan 17:00 og formaður félagsins, Árni Pétur Jónsson, heldur stutta tölu.
Í ljósi fjöldatakmarkana verður ekki hægt að bjóða
upp á kaffiveitingar en ákveðið hefur verið að halda upp á afmælið
með veglegum hætti á haustmánuðum.
Í tilefni af afmælinu kom í dag út sérblað með Fréttablaðinu um Val þar sem fjallað er á margvíslegan hátt um starfsemi félagsins, rætt er við íþróttafólk, stjórnarmenn sem og öfluga stuðningsmenn.