3. flokkur karla deildarmeistari

Þriðji flokkur karla í handbolta varð á dögunum deildarmeistari en liðið varð hlutskarpast í 1. deild Íslandsmótsins þrátt fyrir að hafa aðeins leikið hluta leikjanna. 

Liðið spilaði að endingu sex leiki, vann fimm þeirra og tapaði einum. Við óskum strákunum og þeim sem að liðinu standa til hamingju.