Líf og fjör í fyrstu viku sumarstarfsins - Skráning á næstu námskeið opin

Það var svo sannarlega líf og fjör í fyrstu viku sumarstarfs Vals þetta árið þegar námskeið fóru af stað síðastliðinn mánudag. Vel yfir 100 börn glæddu Valssvæðinu lífi þessa vikuna í sumarbúðum í borg og íþróttaskólum félagsins.

Fjörið heldur áfram í næstu viku og er skráning í námskeið næstu vikna í fullum gangi inn á skráningarsíðu félagsins www.sportabler.com/shop/valur

Opið fyrir skráningar í viku 2 - Í boði er:

  • Sumarbúðir í borg (fyrir & eftir hádegi)
  • Knattspyrnuskóli (fyrir hádegi)
  • Handboltaskóli (fyrir hádegi)
  • Körfuboltaskóli (fyrir hádegi)
  • Sumarbúðir & boltaskóli (*bara fyrir hádegi)

Dagskrá í sumarbúðum í borg - Vika 2 | 21. - 25. júní

Mán // 21. júní

Fyrir hádegi: Fjöruferð

Hádegismatur: Karrýkryddaður plokkfiskur með rúgbrauði og smjöri

Eftir hádegi: Hljómskálagarðurinn

 

Þri // 22. júní

Fyrir hádegi: Hallgrímskirkja

Hádegismatur: Mexikóskar tortilla pönnukökur með hakksósu, sýrðum rjóma og osti

Eftir hádegi: Öskjuhlíð (rathlaup)

 

Mið // 23. júní

Fyrir hádegi: Klambratún

Hádegismatur: Soðin ýsa með kartöflum, bræddu smjöri og rúgbrauði

Eftir hádegi: Sund (muna að taka sundföt)

 

Fim // 24. júní

Fyrir hádegi: Borgarbókasafnið

Hádegismatur: Kjúklingur í karrý með hrísgrjónum og grófu rúnstykki

Eftir hádegi: Árbæjarsafnið

 

Fös // 25. júní

Fyrir hádegi: Leikir á Valsvæðinu

Hádegismatur: Pylsupartí

Eftir hádegi: Húsdýragarðurinn

 

Nánar: www.valur.is/born-unglingar/sumarstarf-vals-2021/sumarbudir-dagskra

Skráning: www.sportabler.com/shop/valur

Heimasíða sumarstarfsins: /sumarstarf