Valsblaðið 2021

Valsblaðið árið 2021 er komið út - Fyrsta Valsblaðið kom út í janúar 1939 en ritstjóri þess og ábyrgðarmaður var Sigurður Ólafsson. Hann og Frímann Helgason sáu um greinaskrif og báru hitann og þungan af útgáfunni árum saman.

Valsblaðið er ómetanleg heimild um starfsemi félagsins og gefur innsýn í helstu málefni og áherslur Vals á hverjum tíma, sigra utan vallar sem innan og tíðarandann.

Af ýmsum ástæðum var útgáfa blaðsins stopul eftir 1940 en það var endurvakið með krafti 1958. Frá árinu 1983 hefur Valsblaðið komið út árlega og nú er 73. tölublaðið komið út undir styrkri ritstjórn Guðna Olgeirssonar en hann hefur ritstýrt Valsblaðinu í tæpa tvo áratugi eða frá árinu 2003.

Smelltu hér til að skoða Valsblaðið 2021

Opnunartími að Hlíðarenda yfir hátíðarnar:

  • Fim 23. des Lokað
  • Fös 24. des lokað
  • Lau 25. des lokað
  • Sun 26. des lokað
  • Mán 27. des 10:00-20:30 
  • Þri 28. des 10:00-22:00
  • Mið 29. des 10:00-20:30
  • Fim 30. des 10:00-20:30
  • Fös 31. des Lokað

 

  • Lau 1. jan Lokað
  • Sun 2. jan Lokað
  • Mán 3. jan 13:00-22:00
  • Þri 4. jan (Æfingarhefjast skv. æfingatöflu á ný)