Aldís og Bryndís valdar í leikmannahóp U19

Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna valdi á dögunum leikmannahóp sem kemur saman til æfinga dagana 24.- 26. janúar næstkomandi. 

Í hópnum eru tvær stelpur úr Val, þær Aldís Guðlaugsdóttir og Bryndís Arna Níelsdóttir. 

Við óskum stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.