Framkvæmdir við heimreið og gangstíga að Hlíðarenda

Nú eru að hefjast framkvæmdir við heimreið, gangstíga og bílastæði að Hlíðarenda sem mun hafa í för með sér töluverð áhrif á aðkomu iðkenda, foreldra og allra þeirra sem leið eiga um Hlíðarendasvæðið næstu vikurnar.

Valur kemur til með að upplýsa um framgang verksins bæði hér á heimasíðunni og á Sportabler varðandi þá hluti sem snúa að iðkendum félagsins.

Mikilvægt er að foreldrar brýni vel fyrir börnum sínum að þau sýni aðgát á framkvæmdasvæðinu og virði þær lokanir sem eru í gangi hverju sinni. Fyllsta öryggis verður gætt á meðan framkvæmdum stendur og verður framkvæmdasvæði afgirt, en þó eru alltaf einhver vinnutæki sem þurfa að vera á ferðinni utan girðingar.

Fyrsti áfangi verksins felur í sér lagninu á nýjum frárennslislögnum og er unnið í samræmi við meðfylgjandi merkingarmynd/mynd hér að neðan.

Stefnt er að verkinu verði að fullu lokið í byrjun desember en það er þó alltaf háð veðri og að ekkert óvænt komi upp.

Ábendingar vegna verksins er hægt að senda á teddi@valur.is