Stolt Reykjavíkur - Þakkir frá stjórn handknattleiksdeildar

Frá stjórn handknattleiksdeildar Vals
Stolt Reykjavíkur!
Stjórn handknattleiksdeildar Vals þakkar þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem og starfsmönnum félagsins fyrir frábæra vinnu í kringum Evrópuleiki Vals og Zalau um liðna helgi.
Valkyrjur, Fálkar, grillarar, trommarar, leikmenn annarra flokka, allir starfsmenn og síðast en ekki síst hin einstaklega vaska sveit sem stillir upp salnum og keyrir áfram hvatninguna stóðu sig öll frábærlega og fyrir það ber að þakka.
Einnig viljum við þakka styrktaraðilum okkar fyrir sitt ómetanlega framlag en án þeirra aðkomu væri þátttaka í keppnum sem þessari ekki möguleg.
Hið frábæra lið meistaraflokks kvenna var að þessu sinni grátlega nærri því að tryggja sig áfram í næstu umferð EHF keppninnar og það gegn einu af sterkustu liðum Evrópu. Leikmenn liðsins, þjálfarar og aðrir starfmenn voru félaginu til mikils sóma og fullvíst að þau ætla sér stóra hluti á tímabilinu og stefna áfram, hærra!
Það er Val og þá ekki síst yngri iðkendum félagsins ómetanlegt að eiga slíkar fyrirmyndir sem þetta frábæra lið meistaraflokks kvenna er í dag. Slíkt er yngri kynslóðinni mikil hvatning og okkur hinum til mikillrar gleði og skemmtunar. Að endingu þökkum við þeim fjölmörgu áhorfendum sem lögðu leið sína í Vodafonehöllina til þess að styðja við bakið á liði sem er að sönnu stolt Reykjavíkur!
Með Valskveðju,
stjórn handknattleiksdeildar Vals













