Jafntefli Valur - Akureyri, Pistill

Það er ljóst að N1-deild karla verður spennandi til síðustu umferðar. Allir geta unnið alla og þegar maður telur sig vera að sjá liðin raða sér í einhvers konar styrkleikaflokka þá hrynur sú kenning í næstu leikjum. Valsliðið er tvímælalaust að bæta sig en við erum jafnframt það lið sem önnur lið ætlast til að sigra. Maður sér alveg fyrir sér þegar önnur lið eru að undirbúa sig fyrir leiki gegn okkur að þá hefur þjálfarinn upp raust sína og þrumar yfir sínum mönnum: "Næsti leikur er gegn Val og eins og við vitum þá eru þeir neðstir í deildinni. Það er því ekki annað í myndinni en að hirða báða punktana úr þeim leik." En hvernig mætum við í leiki? Erum við búin að flytja heimilisfangið á botn deildarinnar? Ætlum við virkilega niður í vor? Ég vona ekki og sannast sagna fannst mér í upphituninni fyrir leikinn í gærkvöldi að Valsstrákar væru að espa hvorir aðra til sigurs. Andstæðingar okkar í gærkvöldi voru Akureyringar sem voru fyrir leikinn tveimur sætum fyrir ofan okkur.
Gestirnir skoruðu fyrsta markið en við svöruðum umsvifalaust með tveimur og héldum frumkvæðinu fram í miðjan fyrri hálfleik. Þá tóku Norðanmenn frumkvæðið og höfðu tveggja marka forskot í hálfleik, 11 - 13.
Í seinni hálfleik byrjuðu gestirnir leikinn með miklum gassagangi og náðu fimm marka forskoti á átta mínútna kafla en Valsstrákar náðu þeim mun niður í eitt mark á næstu átta mínútum þar á eftir. Nú tóku leikar að æsast. Barátta liðanna var í algleymi. Valsmenn skoruðu þrjú mörk í röð og náðu forystu 21 - 20. Síðasta markið kom eftir að Jovan Kukobat varði víti frá Nikola en Þorgrímur greip frákastið og skoraði beint úr kyrrstöðu frá punktalínu. Hér var einbeiting Valsliðsins eins og best getur orðið. Áhorfendur í stúkunni létu vel í sér heyra og það var eins og stemmningunni á vellinum og í stúkunni væri stýrt af sama hjartanu. En eftir mikinn hamagang í lokin skildu liðin jöfn, 24 - 24. Bæði lið eru vitaskuld ósátt við skiptan hlut en sennilega var það sanngjörn niðurstaða.
Í gær byrjaði Lárus í markinu eftir að hafa átt góðan leik gegn ÍR. Lárus fór mjög vel af stað og varði eins og berserkur fyrsta korterið en virtist síðan missa einbeitinguna. En Hlynur kom í markið í seinni hálfleik og átti frábæran leik og varði með miklum tilþrifum helling af erfiðum skotum. Orri og Fannar Þorbjörnsson voru yfirburðamenn í vörninni. Finnur Ingi átti mjög góðan leik í horninu. Hann hafði sig lítið í frammi í fyrri hálfleik en í þeim seinni skoraði hann 6 mörk, flest með því að fljúga inn úr litlu plássi úr horninu rétt eins og hann væri að stinga sér til sunds. Sundstungur Finns enduðu gjarnan á því að hann skúraði gólfið innan vítateigs með maganum. Nikola er mjög sókndjarfur á miðjunni og var sífellt í bardaga við Norðanstráka. Þeir voru greinilega undirbúnir fyrir leikinn og einbeittu sér að því að stöðva Nikola með öllum brögðum. Norðlensku strákarnir beittu því bæði armlásum og öðrum barsmíðum til að gera honum erfitt fyrir. Nikola var markahæstur ásamt Finni og er greinilega að komast í betri takt við liðið. Hann er líka þannig leikmaður að það er mjög gaman að fylgjast með honum, tæknin, hreyfingarnar og áræðnin eru til fyrirmyndar.
Eftir leikinn átti undirritaður stutt spjall við Orra Frey. Orri talaði hreint út og sagði: "Veistu það, við erum ekki svona lélegir. Við erum margfalt betri en þetta og við erum að spila miklu betri handbolta á æfingum heldur en við vorum að sýna hér í kvöld." Mitt svar er einfaldlega: "Takk fyrir upplýsingarnar Orri. Ég held áfram að styðja ykkur en tröllasögur af frammistöðu á æfingum skila engu í töflunni. Ég styð ykkur vitaskuld áfram og ég veit að endurkoma þriggja leikmanna í hópinn tekur sinn tíma í aðlögun. En tíminn er takmarkaður. Hins vegar langar mig óheyrilega til að vera viðstaddur þegar þið sýnið ykkar rétta andlit á vellinum. Þess vegna verð ég í stúkunni á þeim leikjum sem eftir eru."
Helstu tölur: Hlynur varði 9 skot, Lárus 8 og þar af 1 víti. Mörk Vals: Nikola 7, Finnur Ingi 7, Orri 3, Valdimar 3, Þorgrímur 2, Magnús 1 og Vignir 1.
Næsti leikur strákanna er í Kaplakrika gegn FH sunnudaginn 17. febrúar kl. 19:30 en áður en að því kemur eiga stelpurnar leik gegn Aftureldingu í kvöld, föstudaginn 8. febrúar, á Hlíðarenda kl. 20:00.
Sigurður Ásbjörnsson













