Þorbjörn Jensson aðstoðarþjálfari meistaraflokks Vals

Þorbjörn Jensson fyrrverandi leikmaður, þjálfari Vals og landsliðsins mun aðstoða Heimi Ríkarðsson út tímabilið 2012-13. Þetta er sannur hvalreki fyrir félagið enda mikil reynsla þarna að baki og sannur Valsmaður. Við bjóðum Þorbjörn velkominn til starfa og hlökkum til að sjá hans handbragð í leik og starfi.













