Kakópása á miðri æfingu

Fyrstu helgina í febrúar var snjór á gervigrasvelli okkar Valsara og mjög kalt í veðri. Hressir strákar í 5. og 6. flokki karla léta það ekki á sig fá og mættu galvaskir á æfingu - vel klæddir og hressir á sunnudagsmorgni.

Á miðri æfingu birtist svo Jón Gunnar Bergs, ötull áhugamaður um yngri flokka starf félagsins færandi hendi með marga lítra af heitu súkkulaði. Strákarnir drukku kakóið með mikilli ánægju og myndaðist skemmtileg stemmning í kuldanum.

Þeir gátu þó ekki eytt of miklum tíma í þessa kærkomnu "kaffipásu" því þeir voru óþreyjufullir að hefja leik aftur á snævi þöktum vellinum og voru fljótir út á völl í sínar stöður eftir stutta myndatöku.