Hlíf Hauksdóttir í Val

Þessi 23 ára gamli miðjumaður var alin upp hjá KFR en spilaði í öðrum flokk með Val.  Hún hefur síðan leikið með Fylki og ÍVB og leikið með þeim 77 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 25 mörk .

Hlíf mun án efa styrkja og breikka okkar frábæra hóp fyrir átökin í hraðmótum sumarsins. Við bjóðum Hlíf velkomna "heim" og væntum mikils af samstarfinu við hana á komandi árum.