Öruggt gegn Selfossi – pistill í símskeytastíl

Það er ekki alltaf sem íþróttafréttamenn hafa góðan tíma til að skrifa eftir leiki.  Undirritaður er í þeirri stöðu að þessu sinni.  Takið því viljann fyrir verkið.

Fyrirfram:

  • Selfoss hékk í Valsliðinu í bikarleiknum fyrir austan. 
  • Selfyssingar gátu því komið bjartsýnir til leiks. 
  • Við sem ekki sáum bikarviðureignina eða fyrri leikinn í deildinni vissum ekki hvers var að vænta.

Á meðan á leiknum stóð:

  • Valur komst í 3 - 0, 7 - 2 en í hálfleik var staðan 14 - 8 fyrir Val.
  • Seinni hálfleikur byrjaði með þremur Valsmörkum líkt og sá fyrri. 
  • Valsstelpurnar náðu mest 10 marka forystu en leiknum lauk 30 - 21.

Aðfinnslur:

  • Fullmargar sendingar frá mark- og varnarmönnum Vals rötuðu ekki í hendur hlaupagikkanna í hornunum.  Þess í stað lentu þær utan vallar eða í lúkum Selfoss stelpna.
  • Um miðjan síðari hálfleik var eins og einbeiting Valsstelpna væri horfin.  Þær spiluðu slaka vörn og skutu án þess að vera í færi.

Gleði og gaman:

  • Guðrún Lilja Gunnarsdóttir úr þriðja flokki skoraði eitt flottasta mark sem sést hefur á tímabilinu.  Guðrún var á fleygiferð fram í sóknina og var komin út á vinstri vænginn þegar hún fékk fasta sendingu.  Eldsnöggt og án þess að grípa boltann náði hún að sveifla hendinni og stýra boltanum með opnum lófa efst í vinstra hornið á Selfoss markinu.  Algjörlega óvænt og óverjandi fyrir markvörð Selfoss.  Vesalings dómarinn þurfti einnig nokkrar sekúndur áður en hann gat raðað saman atvikunum í kollinum og dæmt markið gilt.
  • Heiðdís Rún spilaði sinn fyrsta leik eftir langvarandi meiðsli.  Heiðdís skoraði síðasta markið með miklum tilþrifum og af miklu harðfylgi.
  • Sonata er að komast í mun betra leikform.  Hún þurfti að sætta sig við fálæti dómaranna þegar henni var skellt með mjaðmahnykk í tvígang í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik fiskaði hún 3 víti.
  • Drífa er komin í mjög gott spilform og skoraði 3 mörk.
  • Kolbrún var skemmtilega sókndjörf og skoraði 3 mörk rétt eins og Drífa.
  • Karólína hefur ekki skorað jafn mikið í einum leik um nokkra mánaða skeið.
  • Þorgerður, Heiða og Bryndís gátu allar hvílt sem var nauðsynlegt til að jafna sig af meiðslum.
  • Leikurinn í gærkvöld er sá fyrsti á árinu þar sem Ragnhildur skaut ekki í tréverkið en Heiðdís systir hennar smellti einum í þverslána þegar hún var að stilla miðið.

Helstu tölur:  Jenný varði 11 skot, Sigríður 2.  Mörk Vals: Karólína 6, Dagný 5, Hrafnhildur 5, Ragnhildur 5, Drífa 3, Kolbrún 3, Sonata 1, Heiðdís 1 og Guðrún Lilja 1.

Næstu verkefni:

  • Það eru eingöngu þrjár umferðir eftir af deildinni hjá stelpunum. 
  • Næsti leikur er gegn FH í Krikanum, sá leikur er kl. 13:30 á laugardaginn 23. febrúar.
  • Því næst leikum við heima gegn HK, sunnudaginn 3. mars (athugið breyttan leiktíma)
  • Síðasti leikurinn í deildinni er laugardaginn 16. mars í Eyjum.
  • En fyrst fjölmennum við á leik Valsstráka gegn HK á morgun, fimmtudaginn 21. febrúar

Sigurður Ásbjörnsson