Sumarbúðir í Borg og Knattspyrnuskóli Vals

Opnað hefur verið fyrir skráningu í Sumarbúðir í Borg sem og Knattspyrnuskóla Vals fyrir sumarið 2013. Hægt er að skrá börnin á heimasíðu Vals undir "skráning iðkenda".

Sumarbúðir í Borg  eru ætlaðar börnum á aldrinum 6 til 10 ára og verða með svipuðu sniði og í fyrra. Það verða tvö námskeið í júní. Það fyrra er 5 dagar og er frá 10.júní til og með 14.júní. Verð fyrir þetta námskeið er 15000 krónur og innifalið í því er hádegismatur fyrir börnin. 

Seinna námskeiðið er frá 18.júní til og með 28.júni. Verð á það er 25000 krónur og líkt og á fyrra námskeiði er hádegismatur inni í verðinu.

Bæði námskeið eru frá 09:00 til 16:00 og verður barnagæsla á milli 08:00 og 09:00 og svo aftur á milli 16:00 og 17:00

Knattspyrnuskóli Vals fer fram fyrir hádegi og er ætlaður börnum frá 6 ára aldri. Það verða fjögur námskeið í boði og byrjar fjörið þann 10.júní.

Námskeið I:Hefst 10.júní og stendur til og með 14.júní. Verð á þetta námskeið er 5000 krónur á barn.

Námskeið II:Hefst 18.júní og stendur til og með 28.júní. Verð á þetta námskeið er 9000 krónur á barn.

Námskeið III: Hefst 1.júlí og stendur til og með 12.júlí. Verð á þetta námskeið er 10000 krónur á barn.

Námskeið IV:Hefst 15.júlí og stendur til og með 26.júlí. Verð á þetta námskeið er 10000 krónur á barn.

Hægt er að kaupa hádegismat fyrir börnin í knattspyrnuskólanum. Það er gert á heimasíðu Vals undir "skráning iðkenda" eða hjá Viðari í síma 414-8005.

einnig geta börn verið í knattspyrnuskólanum fyrir hádegi og Sumarbúðum í borg eftir hádegi. Þá velur viðkomandi bara sumarbúðir í Borg "eftir hádegi".