Valur - Keflavík í Pepsídeild karla

Sunnudaginn 26.maí kl. 19:15 eigast við á Vodafonevellinum Hlíðarenda Valur og Keflavík. Valur er í þriðja sæti deildarinnar eftir fjórar umferðir með 8.stig en Keflavík er í áttunda sæti með 4.stig og því ljóst að um hörkuleik verður að ræða.

Við minnum á að sala árskorta er hafin og kostar árskort sem gildir á alla heimaleiki karla-og kvenna í knattspyrnu aðeins kr.14.000.- Einnig er til sölu Valskort sem gildir á alla heimaleiki karla-og kvenna í öllum deildum og kostar það einungis kr.25.000.-

Einn heppinn árskortshafi mun verða dreginn út í hálfleik og fær að launum Samsung Galaxy Ace II GSM síma að verðmæti kr.55.000.-

Við hvetjum alla Valsara til að fjölmenna og styðja drengina.