Hermann Gunnarsson látinn

Hermann Gunnarsson er látinn, 66 ára að aldri. Hermann varð bráðkvaddur á Tælandi í gær 4. júní.
Hermann átti glæsilegan feril í íþróttum og var hann einn af fremstu knattspyrnumönnum þjóðarinnar, en Hermann lék einnig handknattleik með Val og landsliðinu þar sem hann m.a. setti heimsmet í markaskorun.
Hermann var einn af dáðadrengjum Vals og var hann öflugur talsmaður og merkisberi félagsins hvar sem hann kom því við.
Knattspyrnufélagið Valur sendir fjölskyldu hans og vinum dýpstu samúðarkveðjur.













