Sumarstarf
Vals | Sumarið 2023
Hér má sjá námskeiðin sem eru í boði:
- Sumarbúðir í Borg fyrir 6-11 ára - 5. námskeið í júní og
júlí
- Boltaskóli Vals fyrir 6-10 ára - 3. námskeið í júní
- Knattspyrnuskóli Vals fyrir 6-10 ára - 6. námskeið í júní og
júlí
- Handboltaskóli Vals fyrir 6 - 10 ára - 3 námskeið í júní &
2 í ágúst
- Handboltaskóli Vals fyrir 11-13 ára - 3 námskeið í júní og 2 í
ágúst
- Körfuboltaskóli Vals fyrir 6-10 ára - 3 námskeið í júní & 2
í ágúst
- Körfuboltaskóli Vals fyrir 11-13 ára - 3 námskeið í júní &
ágúst
- Nánari upplýsingar um námskeiðin má finna hér að neðar á
síðunni
Skráning opnar 4. maí - Smelltu hér til að skrá iðkanda á
námskeið
Sumartafla 2023 - Fótbolti (tekur gildi 12. júní
)

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
- - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Sumarbúðir í borg | Sumarið
2023
Hinar margrómuðu Sumarbúðir í Borg verða á sínum stað þetta
sumarið en um er ræða sumarleikjanámskeið sem býður upp á
fjölbreytta dagskrá fyrir börn á aldrinum 6-11
ára eftir hádegi á virkum dögum.
Á dagskrá verður meðal annars:
- Vettvangsferðir og ratleikir
- Fyrirtækjaheimsóknir
- Strand- og fjöruferðir
- Safnaferðir
- Bókasafnsferðir
- Pylsupartí í lok hvers námskeiðs
Lögð er áhersla á fjölbreytta íþróttaiðkun þar sem unnið er með
skyn- og hreyfiþroska barna í gegnum fjölbreytta leiki.
Helsta markmið námskeiðsins er að veita börnunum fjölbreytt
íþróttauppeldi og byggja upp hjá þeim heilbrigðar og hollar
lífsvenjur í öruggu, jákvæðu og skemmtilegu umhverfi.
Líkt og undanfarin ár geta þátttakendur valið um að fá heitan
mat í hádeginu og er rík áhersla lögð á hollan og góðan
heimilismat. Með þeim hætti geta þátttakendur verið í
knattspyrnu-handbolta- eða körfuboltaskóla Vals fyrir hádegi og í
Sumarbúðunum eftir hádegi.
Dagsetningar Sumarbúða í borg 2023
- Námskeið 1: 12. júní - 16. júní
- Námskeið 2: 19. júní - 23. júní
- Námskeið 3: 26. júní - 30. júní
- Námskeið 4: 3.júlí - 7. júlí
- Námskeið 5: 10. júlí - 14. júlí
Verð per námskeið (verð miðast við fullt námskeið sem
er 5 dagar):
- Sumarbúðir eftir hádegi........................ 6.000
- Hægt er skrá iðkanda í hádegismat..... 5.000 (*vika í senn
ekki hægt skrá per dag).
Hagnýtar upplýsingar um Sumarbúðir í
Borg
- Fyrir börn á aldrinum 6-11 ára
- Milli 12:30 og 16:00 alla virka daga eftir að skóla lýkur í
júní og í júlí
- Gæsla fyrir börn milli 16-17
- Hægt að kaupa hádegismat fyrir þátttakendur, maturinn byrjar
klukkan 12:00
- Hægt er að boltaskólum Vals fyrir hádegi og sumarbúðum eftir
hádegi
- Ef þú lendir í vandræðum með skráningu sendu tölvupóst á
gunnar@valur.is eða hringdu í 414-8005
- Smelltu hér til að skrá barn
í Sumarbúðir í borg
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Knattspyrnuskóli Vals | Sumarið 2023
Knattspyrnuskóli Vals verður líkt og undanfarin sumur
starfræktur fyrir hádegi og er ætlaður börnum 6-10 ára. Í
knattspyrnuskólanum kynnast börnin grunntækni í knattspyrnu í
gegnum leik og lögð er áhersla á að fyrstu kynni barnanna af
íþróttinni séu jákvæð og skemmtileg.
Skipt verður í hópa eftir aldri og unnið í litlum hópum til að
hámarka fjölda snertinga við boltann hjá hverjum iðkanda. Unnið er
eftir kennsluskrá knattspyrnudeildar Vals sem leggur áherslu á að
æfingar barna á þessum aldri séu fjölbreyttar og stuðli að bættum
skyn- og hreyfiþroska.
Reyndir þjálfarar og leikmenn Vals miðla reynslu sinni á
faglegan og skemmtilegan hátt. Valur leggur áherslu á að skapa
kjöraðstæður fyrir iðkendur til að njóta sín og hafa gaman af leik
og keppni, óháð aldri og getu.
Í boði er að vera í knattspyrnuskóla fyrir hádegi og Sumarbúðum
í Borg eftir hádegi. Hádegisverður er ekki innifalinn í verði en
hægt er að kaupa heitan hádegisverð.
Kennsla í Knattspyrnuskólanum fer fram sem hér
segir:
- Mánudaga: 10:30-12:00
- Þriðjudaga: 10:30-12:00
- Miðvikudaga: 10:30-12:00
- Fimmtudaga: 10:30-12:00
- Föstudaga: 10:30-12:00
Dagsetningar Knattspyrnuskólans
- Námskeið 1: 12.júní - 16.júní
- Námskeið 2: 19.júní - 23.júní
- Námskeið 3: 26.júní - 30.júní
- Námskeið 4: 3.júlí - 7.júlí
- Námskeið 5: 10. Júlí - 14. júlí
- Námskeið 6: 17. júlí - 21. júlí
Verð per námskeið:
- Knattspyrnuskóli Vals
................................................. 6.000
-
Hádegismatur...............................................................5.000
Hagnýtar upplýsingar um Knattspyrnuskóla
Vals
- Fyrir börn á aldrinum 6-10 ára
- Milli 10:30 og 12:00 mánudaga - föstudaga.
- Æfingar hjá 7. og 6. flokki eru frá 09:00-10:00 (Nestispása
milli 10 og 10:30)
- Gæsla fyrir börn frá 8-9 (fram að æfingu sem byrjar 09:00) og
16-17
- Aukagæsla á föstudögum frá 9:00-10:30 (fram að
knattspyrnuskóla)
- Hægt að vera í knattspyrnuskóla fyrir hádegi og Sumarbúðunum
eftir hádegi (Sér skráning fyrir sumarbúðir)
- Ef þú lendir í vandræðum með skráningu sendu tölvupóst á
gunnar@valur.is eða hringdu í 414-8005
- Smelltu hér til að skrá barn í
knattspyrnuskóla Vals
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
- - - - - - - - - - - - - - - - -
Boltaskóli að eigin vali (Einungis í boði í
júní)
Boltaskóli að eigin vali er námskeið sem er hugsað fyrir
iðkendur á aldrinum 6-10 ára vilja prófa fleiri en eina
boltagrein.
Iðkendur á þessu námskeiði geta valið um hvort þeir fara í
handbolta, fótbolta eða körfuboltaskóla Vals frá 10:30-12:00
mánudag- föstudags. Hægt er að prófa alla skólana (fótbolta,
handbolta og körfubolta) á heilu námskeiði (1 viku).
Kennsla í boltaskóla Vals fer fram sem hér
segir:
- 10:30 og 12:00 mánudag-föstudags.
Dagsetningar boltaskóla
Vals:
- Námskeið 1: 12.júní - 16.júní
- Námskeið 2: 19.júní - 23.júní
- Námskeið 3: 26.júní - 30.júní
Verð per námskeið:
- Boltaskóli
.................................................................
6.000
Hagnýtar upplýsingar um Boltaskóla Vals:
- Fyrir börn á aldrinum 6-10 ára
- Milli 10:30 og 12:00 mánudag-föstudags
- Hægt að vera í Sumarbúðum í borg eftir hádegi - Velur
Sumbarbúðirnar sér á skráningasíðu Vals
- Ef þú lendir í vandræðum með skráningu sendu tölvupóst á
gunnar@valur.is eða hringdu í 414-8005
- Smelltu hér til að skrá barn í
boltaskóla Vals
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
- - - - - - - - - - - - - - - - -
Handboltaskóli Vals 6-10 ára (1. - 4.
b)
Um er að ræða námskeið fyrir krakka í 6-10 ára bæði
stelpur og stráka þar sem haldið verður áfram að kenna grunnatriði
handboltans í gegnum leiki og skemmtilegar boltaæfingar.
Farið verður yfir öll helstu grunnatriði handboltans ásamt því
að að spila og fara í skemmtilega leiki.
Frábært námskeið fyrir þá sem vilja prófa nýja íþróttt og þá sem
hafa æft áður og vilja nýta sumarið í að bæta sig.
Námskeiðið verður haldið samhliða Sumarbúðunum í borg í
júní svo krakkar geta verið í handboltaskólanum
fyrir hádegi og Sumarbúðirnar á eftir
hádegi.
Kennsla í handboltaskólanum í júní og ágúst fer fram
sem hér segir:
- Mánudag-föstudags 10:30-12:00
Dagsetningar Handboltaskólans í júní
- Námskeið 1: 12. júní - 16. júní
- Námskeið 2: 19. júní - 23. júní
- Námskeið 3: 26. júní - 30. júní
Dagsetningar Handboltaskólans í
ágúst
- Námskeið 4: 8. ágúst - 11. ágúst
- Námskeið 5: 14. ágúst - 18. ágúst
Verð per námskeið:
- Handboltaskóli Vals
.................................................
6.000 (*miðast við fullt námskeið 5 daga)
Hagnýtar upplýsingar um Handboltaskóla
Vals
- Fyrir börn á aldrinum 6-10 ára
- Hægt er að vera í handboltaskóla fyrir hádegi og sumarbúðum
eftir hádegi í júní.
- Hægt er að kaupa hádegismat með námskeiðinu í júní.
- Ef þú lendir í vandræðum með skráningu sendu tölvupóst á
gunnar@valur.is eða hringdu í 414-8005
- Smelltu hér til að skrá barn í
barn í handboltaskóla Vals
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
- - - - - - - - - - - - - - - - -
Handboltaskóli Vals 11-13 ára (5. - 7. b)
Um er að ræða námskeið fyrir 11 - 13 ára stelpur og stráka sem
vilja bæta sig öllum þátttum handboltans (fintur, skot og
tækniæfingar).
Frábært námskeið fyrir iðkendur sem vilja bæta sig og nýta
sumarið í að ná enn meiri framförum.
* Stelpur & strákar æfa: Mánudaga - Föstudaga
frá 09:00-10:30
Dagsetningar Handboltaskólans í júní
Dagsetningar Handboltaskólans í ágúst
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Körfuboltaskóli Vals | 6-10 ára (1.-4.b)
Körfuboltaskóli Vals er fyrir áhugasama körfuboltakrakka á
aldrinum 6-10 ára. Um er að ræða skemmtilegt námskeið fyrir bæði
stelpur og stráka, hvort sem iðkendur eru byrjendur eða lengra
komnir.
Farið verður yfir öll helstu grunnatriði körfuboltans ásamt því
að að spila og fara í allskonar skemmtilega leiki.
Frábært námskeið fyrir bæði þá sem vilja prófa nýja íþrótt og þá
sem hafa æft áður og vilja nýta sumarið í að bæta sig.
Námskeiðið verður haldið samhliða Sumarbúðunum í Borg í júní
svo krakkar geta verið í körfuboltaskólanum fyrir
hádegi og Sumarbúðirnar á eftir hádegi.
Kennsla í körfuboltaskólanum í júní og ágúst fer fram
sem hér segir:
Dagsetningar Körfuboltaskólans í júní
- Námskeið 1: 12.júní - 16.júní
- Námskeið 2: 19.júní - 23.júní
- Námskeið 3: 26.júní - 30.júní
Dagsetningar Körfuboltaskólans í ágúst
- Námskeið 4: 8. ágúst -11. ágúst
- Námskeið 5: 14. ágúst - 18. ágúst
Verð per námskeið:
- Körfuboltaskóli Vals
................................................
6.000 (*miðast við fullt námskeið 5
daga)
Hagnýtar upplýsingar um Körfuboltaskóla
Vals
- Fyrir börn á aldrinum 6-10 ára
- Gæsla fyrir börn frá 8-9 og 16-17 (í júní)
- Hægt að vera í Körfuboltaskóla fyrir hádegi og Sumarbúðunum
eftir hádegi (í júní)
- Ef þú lendir í vandræðum með skráningu sendu tölvupóst á
gunnar@valur.is eða hringdu í 414-8005
- Smelltu hér til að ganga frá
skráningu
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
- - - - - - - - - - - - - - - - -
Körfuboltaskóli Vals 11-13 ára (5. - 7.
b)
Um er að ræða námskeið fyrir 11 - 12 og 13 ára stelpur og stráka
sem hafa brennandi áhuga á körfubolta.
Frábært námskeið fyrir iðkendur sem vilja bæta sig og nýta
sumarið í að ná enn meiri framförum.
Kennsla í körfuboltaskólanum í júní og
ágúst
- Mánudag-föstudags: 09:00-10:30
Júní námskeið
Ágúst námskeið