REGLUR um heiðursviðurkenningar á vegum Knattspyrnufélagsins
Vals
1. gr.
Stjórn Knattspyrnufélagsins Vals (hér eftir nefnt Valur)
er heimilt að veita þeim heiðursviðurkenningar sem unnið hafa af
atorku og dugnaði að vexti og viðgangi félagsins innan vallar
sem utan, eftir því sem sem segir í reglum þessum.
Heimilt er í undantekningartilvikum að sæma utanfélagsmenn
heiðursviðurkenningum Vals.
2. gr.
Aðalstjórn Vals hefur með höndum umsjón og ákvörðun með vali og
afhendingu á heiðursmerkjum á vegum félagsins - sbr. 20. og 3. mgr.
5. greina samþykkta félagsins.
Aðalstjórn er þó heimilt ef þurfa þykir að kalla sér til
ráðgjafar félagsmenn, einn eða fleiri, vegna veitinga viðurkenninga
hverju sinni.
3. gr.
Viðurkenningar eru þessar:
- Silfurmerki
- Gullmerki
- Heiðursorða Vals
- Heiðursfélagi Vals
4. gr.
Aðalstjórn Vals gerir tillögu um veitingu heiðursmerkis
félagsins úr silfri.
Silfurmerki Vals er upphleypt merki félagsins á prjóni og er í
formi barmnælu.
Heiðursmerki úr silfri má veita þeim félaga sem unnið hefur gott
starf eða afrek í keppni í þágu félagsins að lágmarki í 3-5 ár.
Útnefning og afhending silfurmerkis skal vera á heilum og hálfum
tug á aldri félagsins og jafnan skal afhending viðurkenninga fara
fram 11. maí. Stjórn er heimilt að veita viðurkenningu utan
þess tíma ef sérstakar aðstæður krefjast þess.
Silfurmerki Vals er heimilt að veita aðilum utan félags til
sérstakra velunnara Vals enda hljóti tilnefningin samþykki 3/4
hluta stjórnar.
5. gr.
Aðalstjórn Vals gerir tillögu um veitingu heiðursmerkis
félagsins úr gulli.
Gullmerki Vals er upphleypt merki félagsins á prjóni og er í
formi barmnælu.
Heiðursmerki úr gulli má veita þeim félaga sem unnið hefur
frábært starf eða afrek í keppni í þágu Vals og eigi skemur en í
8-10 ár.
Gullmerki Vals er heimilt að veita aðilum utan félags til
sérstakra velunnara Vals enda hljóti tilnefning samþykki 2/3 hluta
stjórnar.
Kosning og afhending merkisins skal vera með sama hætti og um
getur í 4. gr.
6. gr.
Aðalstjórn Vals gerir tillögu um veitingu heiðursorðu Vals
(Valsorðuna) sem er upphleypt merki Vals með lárviðarsveig utan um
merkið. Merkið er í formi barmnælu eða með borða um háls.
Valsorðuna má aðeins veita þeim félaga sem starfað hefur vel og
af óeigingirni í þágu félagsin eigi skemur en 15 ár.
Valsorðuna er heimilt að veita aðilum utan félags til sérstakra
velunnarra Vals enda hljóti útnefning samþykki allrar stjórnar.
Kosning og afhending heiðursorðunnar skal vera með sama
hætti og um getur í 4. gr.
7. gr.
Nafnbótina heiðursfélagi í Knattspyrnufélaginu Val má aðeins
veita þeim sem hefur unnið frábært starf í þágu félagsins og eigi
skemur en 20 ár. Heiður þessi er sá æðsti sem Knattspyrnufélagið
Valur veitir.
Á heiðursskjali, er fylgir útnefningu heiðursfélaga, skal rita
nafn og starfsheiti þess, sem hlýtur nafnbótina. Enn fremur skal
þar rita, hverjir sérstakir verðleikar hafi gert hann verðan þess
að hljóta sæmdarheitið heiðursfélagi. Heiðursskjalið er undirritað
af formanni Vals.
Heiðursfélagar Vals mega aldrei vera fleiri en 10 hverju sinni
en aldrei færri en tveir.
Nafnbótin er tilkynnt við hátíðleg tækifæri s.s. á stórafmælum
félagsins. Henni fylgir heiðursskjal til staðfestingar.
Heiðursfélagar eru undanþegnir árgjöldum, en hafa öll réttindi sem
fylgja félagsaðild.
8. gr.
Formaður Vals veitir viðurkenningar félagsins ásamt
heiðursskjali á afmælisdegi eða öðrum hátíðarviðburðum.
Í fjarveru formanns veitir varaformaður eða annar staðgengill
viðurkenningarnar.
Þegar félagsmaður er sæmdur heiðursviðurkenningu félagsins, skal
ávallt skýrt opinberlega frá því, hverjir sérstakir verðleikar hafi
gert hann verðan sæmdarinnar.
9. gr.
Þeir sem hljóta heiðursviðurkenningar Knattspyrnufélagsins Vals
hafa einir rétt til þess að bera þær og er óheimilt að framselja
þær.
10. gr.
Stjórn Knattspyrnufélagsins Vals skal halda gerðabók þar
sem skrá skal handhafa viðurkenninga félagsins.
---
Þannig samþykkt á aðalfundi Knattspyrnufélagsins Vals 21.
maí 20025 í samræmi við 20. gr. samþykkta félagsins.