Valsmenn Reykjavíkurmeistarar 2015 í knattspyrnu karla

Valsmenn eru Reykjavíkurmeistarar í knattspyrnu karla árið 2015. Strákarnir unnu Leikni 3-0 í úrslitaleik mótsins.

Valsarar komust í 2-0 með mörkum Sigurður Egils Lárussonar og Kristins Freys sem skoraði úr víti. Sigurður Egill fékk skömmu seinna sitt annað gula spjald og lauk leik.

Agi, skipulag og góð vörn einkenndi Valsliðið í seinni hálfleik og liðið gaf fá fær á sér. Þórður Steinar innsiglaði titilin með skallamarki tíu mínútum fyrir leikslok.

Fyrsti titill liðsins undir stjórn nýrra þjálfara staðreynd. Til hamingju Valur, áfram hærra!