Meistaraflokkarnir í handbolta með góða sigra á útivöllum um helgina.

9.3.2015

Góðri handboltahelgi er að ljúka hjá meistaraflokkunum í handbolta. Valskonur fóru í Árbæinn og unnu, Valsmenn fóru norður og sigruðu Akureyringa 26-20.

Hjá konunum var Kristín Guðmundsdóttir markahæst með 10 mörk. Hjá piltunum var Guðmundur Hólmar Helgason með 8 mörk.
Valskonur eru í 6.sæti í kvennadeildinni og mæta næst Haukum þann 28.mars. Valsmenn eru í efsta sæti hjá körlunum með 36 stig og mæta næst Fram á heimavelli á fimmtudagskvöld.