Landsliðskonur í knattspyrnu

Tveir leikmenn Vals hafa verið valdir í landsliðsverkefni hjá KSÍ. Elín Metta Jensen var kölluð í A landsliðið sem mætir Hollandi og Málfríður Anna Eiríksdóttir heldur utan með U-19 ára liðinu. Förinni hjá U-19 ára liðinu er heitið til Frakklands þar sem liðið mun spila 3 leiki.

við óskum þeim báðum auðvitað góðs gengis.