Vormót hjá 6. og 7. flokki í knattspyrnu

Knattspyrnufélagið Valur heldur vormót fyrir 6. og 7. flokk kvenna og karla á morgun laugardag og sunnudag.

Það verða stúlkurnar í 7. flokki sem hefja mótið kl. 08:30 laugardaginn 14. apríl á gervigrasinu að Hlíðarenda.

6.flokkur mun svo spila sunnudaginn 15. apríl.

Gera má því ráð fyrir að um 400 börn verði á svæðinu um helgina því er von á að líf og fjör verði um helgina á Hlíðarenda. Þetta mót er hluti af fjáröflun 3. flokks kvenna og karla sem eru að fara í keppnisferð til Englands í lok júlí og munu iðkendur 3. flokks og foreldrar þeirra starfa á mótinu.