Bergrós Lilja Jónsdóttir, ungmennalandsliðskona, hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals

Bergrós Lilja Jónsdóttir, 18 ára miðvörður úr Þrótti, hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals. Bergrós hefur spilað með öllum yngri landsliðum Íslands og er griðarlega efnileg. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Bergrós þegar spilað 62 meistaraflokksleiki með Þrótti.

Bergrós hefur spilað með yngri landsliðum Íslands:
U-19: 3 leikir
U-17: 8 leikir
U-15: 3 leikir 

Í samtali við Val.is hafði Bergrós þetta að segja um félagaskiptin:
"Valur hefur frábæra aðtöðu, umgjörin í kringum liðið er góð og hópurinn spennandi. Ég vil að taka þátt í toppbaráttu með Val og vonandi spilar liðið hraðan og góðan fótbolta. Sem leikmaður er ég yfirveguð, jákvæð og metnaðarfull".

Knattspyrnudeild Vals lýsir ánægju með að hafa fengið Bergrósu til liðs við félagið. Kvennalið Vals er ungt og spennandi og í stöðugri þróun.  

(mynd:fotbolti.net)