Valkyrjur - Stofnfundur í kvöld

Fimmtudaginn 12. apríl verður stofnaður félagsskapurinn Valkyrjur sem verður félagsskapur Valskvenna á öllum aldri. Stofnfundurinn verður í Kapellunni og hefst kl. 20:00.

Síðasta miðvikudagskvöld hittust átta hugrakkar konur og ákváðu að það væri orðið tímabært að stofna félagsskap innan félagsins fyrir konur. Eins og flestum er kunnugt um þá er hinn kröftugi karlaklúbbur Fálkarnir starfræktur hjá félaginu. Þessi félagsskapur ætlar sér ekki í samkeppni við Fálkana en hefur áhuga eins og þeir að láta gott af sér leiða á Hlíðarenda - styðja við, efla og styrkja Val.

Hjá Valkyrjum verður margt brallað og þar mun gleði, jákvæðni og fjör ráða ríkjum. Við hvetjum allar Valskonur, Valsmömmur, leikmenn og aðrar áhugsamar til að mæta á fimmtudag.

Með kveðju, nefndin.