Rúna Sif Stefánsdóttir skrifar undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals

Rúna Sif Stefánsdóttir, 26 ára knattspyrnukona úr Stjörnunni, hefur gengið frá tveggja ára samningi við knattspyrnudeild Vals.

Rúna Sif á alls 182 meistaraflokksleiki að baki og hefur skorað í þeim 48 mörk. Rúna Sif er sóknarsinnaður leikmaður með mikla reynslu sem mun nýtast vel á komandi tímabili.

Rúna Sif eftirtalda leiki að baki með yngri landsliðum Íslands:
U-19: 14 leikir, 1 mark.
U-17: 8 leikir

Knattspyrnudeild Vals lýsir mikilli ánægju með að fá Rúnu Sif til félagsins vonar að hún styrki spennandi lið meistaraflokk kvenna enn frekar.