Sveinn Aron skrifar undir samning

Í dag skrifaði Sveinn Aron Sveinsson undir þriggja ára samning við handknattleiksdeild Vals. Sveinn Aron er uppalinn Valsari og er einn af efnilegustu leikmönnum okkar. Sveinn Aron hefur leikið með yngri landsliðum Íslands og hefur verið viðloðandi meistaraflokk félagsins undanfarin ár.