Hin hliðin - Rakel Logadóttir
Gælunafn: Svarta Perlan
Uppáhaldsmatur? Lambakjöt og brúnaðar kartöflur með brúnni sósu
Hvernig skóm spilar þú í? Það fer eftir hver tímir að splæsa...
Hvað varstu gamall/gömul þegar þú byrjaðir að æfa fótbolta? 9 ára.
Fylgist þú með öðrum íþróttum? Já handbolta
Skemmtilegt atvik úr fótboltaferð? Þegar Gugga nokkur markmaður týndist eftir gleðskap sem fram fór eftir leik í evrópukeppni. Enginn vissi hvað varð um hana..ekki einu sinni hún sjálf.. En hún fannst eftir nokkra leit...sem betur fer J
Hvaða lag kemur þér í gírinn fyrir leik? Niggaz in Parish með Jay -Z og Kaney og Gus Gus lög. Ekkert Pitt Bull drasl í mín eyru!!
Hvar líður þér best? Á sófanum fyrir framan sjónvarpið og úti á velli.
Fallegasti/fallegasta knattspyrnumaðurinn/konan í meistaraflokki í Val? Ég veit það ekki..ætli ég taki ekki þann titil...en Gunni þjálfari er með fallegasta rassinn J
Hver er mesti sprellarinn í hópnum ? ÉG..það þarf ekkert að spyrja af því! Ég er svo klikkuð..hehe
Hver er efnilegasti Valsarinn í fótbolta ? Allur 95 árgangurinn er efnilegastur... svakalegur hópur þar á ferð.
Afhverju Valur ? Valur er best alveg eins og heima er best.