Jólabingó Barna- og Unglingasviðs Vals

Sunnudaginn 13. desember næstkomandi frá klukkan 11-13 mun barna- og unglingasvið Vals standa fyrir jólabingói í Valsheimlinu að Hlíðarenda. Markmiðið er að foreldrar og iðkendur geti átt góða stund saman á aðventunni og um leið afla tekna sem renna beint í yngri flokk starf félagsins.

Búið er að ráða bingóstjóra og mun enginn annar en Villi Naglbítur stýra skemmtuninni af sinni alkunnu snilld. Að loknu bingói býðst gestum tækifæri til að gæða sér á glæsilegu kaffihlaðborði gegn vægu gjaldi.