Valskórinn - Valsmessa

Valskórinn færir stöðugt út kvíarnar og mun á sunnudaginn syngja í messu í Háteigskirkju. Þetta verður sannkölluð Valsmessa þar sem leikmenn úr meistaraflokki kvenna og karla sem og yngri flokka munu aðstoða við messugjörðina.

Messan hefst kl. 11:00 og eru allir Valsarar hvattir til að koma og marka þannig upphaf úrslitakeppninnar hjá konunum í handboltanum og farsæls fótboltasumars.