Hin hliðin - Mist Edvardsdóttir

Nafn, fæðingardagur og ár? Mist Edvardsdóttir, 17. október 1990.

Gælunafn ? Mystikal, ég kýs að rita það með k-i.

Uppáhaldsmatur? Humar og rjúpnasúpa.

Hvernig skóm spilar þú í ? Adidas AdiPower í augnablikinu.

Hvað varstu gömul þegar þú byrjaðir að æfa fótbolta? 4 ára.

Fylgist þú með öðrum íþróttum? Já, þegar það er eitthvað merkilegt að gerast þá fylgist ég með handbolta, NBA, NFL og golfið getur dottið inn en það er bara þegar nokkrir kylfingar eru eftir. Hef líka bara mjög gaman af því að fylgjast með afreksmönnunum í nánast hvaða íþrótt sem er.

Skemmtilegt atvik úr fótboltaferð? Mér finnst fyndið að Pálu hafi verið svo heitt í Glasgow að hún braut bara gluggann með hnefanum til að lofta út.

Hvaða lag kemur þér í gírinn fyrir leik? http://www.youtube.com/watch?v=pNhDlzWEUHU - Feel good lög gera ekki mikið fyrir mig rétt fyrir leik.

Hvar líður þér best? Á fallegum sumardegi með allri fjölskyldunni minni úti á palli heima í Mosó, í góðu grilli.

Fallegasti/fallegasta knattspyrnumaðurinn/konan í meistaraflokki í Val?  Mér finnst við öll svo ógeðslega falleg að það er eiginlega ekki hægt að gera upp á milli.

Hver er mesti sprellarinn í hópnum? Rakel rugludolla Logadóttir.

Hver er efnilegasti Valsarinn í fótbolta?  Þessi '95 árgangur er hrikalega efnilegur ásamt Kötlu sem er fædd '96.

Af hverju Valur ? Faglegasti klúbburinn á Íslandi!