Breki Bjarnason skrifar undir samning

Í dag skrifaði Breki Bjarnason undir tveggja ára samning við Knattspyrnufélagið Val. Breki er einn af efnilegri leikmönnum 2.fl karla og hefur m.a. verið fyrirliði liðsins. Það er ánægjuefni hversu marga góða leikmenn Valur hefur á sínum snærum í yngri flokkum og eru miklar vonir bundnar við Breka og félaga í 2.fl karla í sumar og næstu ár.