Lilja Dögg Valþórsdóttir skrifar undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals

Lilja Dögg Valþórsdóttir, varnarmaðurinn leikreyndi, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals.
Lilja Dögg á að baki yfir tvö hundruð meistaraflokksleiki og mun reynsla hennar verða mikilvæg á komandi tímabili. Lilja Dögg gékk til liðs við Val á miðju síðasta tímabili og kom þá meiri yfirvegun yfir varnarleik Valsliðsins og mun nú halda því áfram. Lilja hóf sinn feril árið 1998 með ÍBA en hefur á sínum ferli spila með Val,Stjörnunni, Þór/KA/KS,KR, Víkingi,Aftureldingu og Blikum.
Í tilefni af samningnum var rætt við Lilju:
"Valur er lið sem á að vera að berjast um titla á hverju ári og það er greinilega hugur í öllum í liðinu sem og í kringum liðið að gera mun betur á komandi keppnistímabili. "
Lengra viðtal við Lilju má lesa á ValFótbolta.












