Allt eða ekkert í Hólminum á morgun

Stelpurnar í kvennaliði Vals í körfuknattleik þurfa nauðsynlega á sigri að halda í þriðja leik liðanna í úrslitakeppni kvenna sem fer fram í Stykkishólmi þriðjudaginn 5. apríl.

Eftir gríðarlega jafnan endasprett í fyrsta leik liðanna fylgdi eftir háspennuleikur í Valshöllinni á laugardaginn þar sem úrslit réðust í framlengingu. 

Það verður því að duga eða drepast þegar stelpurnar mæta Hólmurum á morgun þar sem ekkert minna en sigur dugir til að halda lífi í einvíginu.