Þrjár Valsstúlkur í Reykjavíkurúrvalinu

Á dögunum valdi Hafdís Guðjónsdóttir, þjálfari Reykjavíkurúrvalsins 10 manna leikmannahóp sem fer á vegum ÍBR (eða Reykjavíkurborgar) til keppni í Finnlandi þar sem spilað verður á móti úrvalsliðum höfuðborga Norðurlandanna.

Í hópnum eru hvorki fleiri né færri en þrjár stelpur úr Val, þær Ásdís Þóra Ágústsdóttir, Ída Margrét Stefánsdóttir og Nikolina Milansdóttir Remic sem allar leika með 5. flokki félagsins.

Um er að ræða frábær árangur hjá stelpunum, sér í lagi vegna þess að úrtakshópurinn var í kring um 30 stelpur og aðeins 10 stelpur valdar. 

Valur.is óskar stelpunum til hamingju og velfarnaðar í Finnlandi.