LNS Saga nýr aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildar Vals

LNS Saga nýr aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildar Vals

 

Knattspyrnudeild Vals og verktakafyrirtækið LNS Saga undirrituðu samstarfssamning fyrir opnunarleik Vals í Pepsí-deildinni í knattspyrnu síðastliðinn sunnudag þar sem LNS Saga verður aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildarinnar næstu tvö árin.

 

"Valur er í mikilli sókn og því gleðiefni að tengjast framsæknu fyrirtæki sem er stórhuga og óhætt er að segja að Valur og LNS Saga tengist mjög vel því bæði félögin eru í uppbyggingu og horfa fram á veginn með háleit markmið. Það er gleðiefni þegar fyrirtæki ákveður að tengja nafn sitt við grasrót íþróttahreyfingar og tengjast þar með beint við kjarnastarfsemi og undirstöðu sérsambanda," segir Edvard Börkur Edvardson, formaður knattspyrnudeildar Vals. 

 

"Við erum ánægð og stolt af því að hafa náð að tengja vörumerki okkar við þetta öfluga íþróttafélag sem á að baki glæsilega sögu í íslenskri knattspyrnu og með trygga stuðningsmenn um land allt. LNS Saga er tiltölulega nýlegt félag á íslenska markaðnum er það heiður að fá að tengja vörumerki okkar við knattspyrnudeild Vals," segir Ásgeir Loftsson, framkvæmdastjóri LNS Saga.

 

Um LNS Saga.

LNS Saga er ungt og framsækið alhliða verktakafyrirtæki sem byggir á öflugu og reynslumiklu teymi lykilstjórnenda. Helstu verkefni eru uppbygging ibúða- og atvinnuhúsnæðis, virkjana og iðnaðarframkvæmdir, vega- og jarðgangagerð, sjóvinna og hafnarmannvirki. Starfsmenn LNS Saga búa yfir haldgóðri og fjölbreyttri reynslu af stjórnun stórra framkvæmdaverkefna á Íslandi og norðurlöndunum.

 

Á myndum:

Edvard Börkur Edvardson og Ásgeir Loftsson

Ásgeir Loftsson, Kjartan G. Gunnarsson, Edvard Börkur Edvardson, Jónas Halldórsson, Stefán Sigurðsson og Guðmundur Þórðarson.

 

Nánari upplýsingar veita:

 

Edvard Börkur Edvardson

Formaður knattspyrnudeildar Vals

s. 840 1809

e.borkur@gmail.com

 

Ásgeir Loftsson

Framkvæmdastjóri LNS Saga

s. 842 2100

asgeir.loftson@lns.is