Ólafur Ægir Ólafsson í raðir Valsmanna

Valur hefur samið við hin unga og efnilega Ólaf Ægi Ólafsson. Óli er okkur Valsmönnum að góðu kunnur enda hefur hann fylgt föður sínum á Hlíðarenda frá blautu barnsbeini en faðir hans er Ólafur Már Sigurðsson sem hefur starfað í stjórnum og ráðum á vegum Vals s.l. áratugi.

Ólafur var fastamaður í 1994 landsliðinu og hefur spilað með meistaraflokki frá 14 ára aldri, fyrst með Gróttu undir stjórn Geirs Sveinssonar og svo Fram.

Við Valsmenn bindum miklar vonir við þennan efnilega leikmann og bjóðum hann velkominn á Hlíðarenda.

IMG_1389.JPG

IMG_1395.JPG