Uppskeruhátíðir - Handbolti og Körfubolti föstudaginn 27. maí

Næstkomandi föstudag 27. maí verður uppskeruhátíð hjá yngriflokkum í bæði handbolta og körfubolta. Frá klukkan 16:30-18:00 verður veturinn gerður upp hjá 5. - 8. flokk í handboltanum og körfuboltinn fylgir strax í kjölfarið klukkan 18:00.

Veittar verða viðurkenningar fyrir keppnistímabilið, þjálfarar gera grein fyrir starfi vetrarins og iðkendur verða með skemmtiatriði í formi myndbanda. Foreldrafélög flokkanna sjá um léttar veitingar og eru foreldrar hvattir til að fjölmenna. 

Uppskeruhátíðin fer fram í hátíðarsal Valsheimilisins.