Aðgát skal höfð .....
Aðgát skal höfð .....
Íslandsmótið í knattspyrnu er hálfnað. Meistaraflokkur kvenna
hefur alla burði til að verða Íslandsmeistari. Meistaraflokkur
karla hefur alla burði til að verða bikarmeistari og berjast um
efstu sætin í Pepsideildinni, þótt gengið hafi verið brösótt fram
til þessa. Við sem erum Valsarar eigum að standa saman í gegnum
súrt og sætt. Það eru allir að gera sitt besta, innan vallar sem
utan, bæði í meistaraflokkum og yngri flokkunum. Svo ekki sé talað
um allar stjórnir deilda og sjálfboðaliða sem verja sínum frítíma í
að efla hag félagsins, styðja við bakið á iðkendum.
Þjálfurum, sem eru ráðnir til félagsins, er treyst til að velja
liðið hverju sinni, lesa leikinn og gera breytingar. Þjálfararnir
eru með leikmönnum daglega, jafnvel marga klukkutíma á dag. Við sem
sitjum á pöllunum og styðjum félagið höfum engar forsendur til að
meta hver eigi skilið að vera í byrjunarliðinu, hvaða leikkerfi eru
notuð eða hvað þjálfarnarnir eru að hugsa. Við getum haft skoðanir
á hverjum leik fyrir sig og leikmönnum, látið þær í ljós án þess að
dæma aðra og velt vöngum yfir því hvað hafi verið vel gert og hvað
megi betur fara. Sjálfur hef ég sterkar skoðanir og án efa misst
eitthvað út úr mér sem ég hefði betur látið ógert.
Undanfarið hefur borið á dómhörku Valsmanna úr stúkunni, dómhörku
í garð leikmanna, jafnvel niðrandi ummæli um einstaklinga sem eru
að leggja sig fram, sinna ástríðunni, en gera mistök -- eða ekki
mistök. Slíkt er Valsmönnum ekki sæmandi. Sumir vilja gefa ungum
leikmönnum fleiri tækifæri, aðrir fetta fingur út í nýja leikmenn
og eflaust vakna þessar vangaveltur af því viðkomandi er með
hagsmuni og velferð Vals að leiðarljósi. Við lærum mest af mistökum
okkar, hvort sem við erum innan vallar eða utan og ,,sá sem gerir
aldrei mistök hefur aldrei lifað til fulls" -- sagði vitur maður.
Þess vegna eigum við að gæta orða okkar og hafa máltækið í heiðri:
,,Aðgát skal höfð í nærveru sálar."
Við sem fullorðin erum beint eða óbeint fyrirmyndir þeirra sem
yngri eru. Iðkendur yngra flokka horfa á leiki, sem og foreldrar,
systkini, jafnvel börn leikmanna. Ættum við ekki daglega að minna
okkur á einkunnarorð Vals: ,,Látið aldrei kappið bera fegurðina
ofurliði."
Ég hvet alla Valsmenn nær og fjær, til að standa saman, hafa
heiðarleika að leiðarljósi, innan vallar sem utan og leggja sitt af
mörkum til þess að Valur verði ávallt í fremstu röð. Tækifærin
blasa við okkur og Hlíðarendi á að vera griðarstaður iðkenda,
foreldra, áhorfenda og þeirra sem vilja lifa og hrærast í
heilbrigðu og fallegu umhverfi þar sem hver og einn hefur tækifæri
til blómstra -- á sinn hátt.
Þorgrímur Þráinsson formaður Vals