Körfuboltaskóli Vals - Þriðja námskeið sumarsins hefst á mánudaginn

Þriðja námskeið í körfuboltaskóla Vals hefst næstkomandi mánudag, þann 15. ágúst. Námskeiðið er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 6-11 ára fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. 

Víkingur Goði hefur yfirumsjón með námskeiðinu líkt og fyrr í sumar og er skráning í fullum gangi inn á valur.felog.is. Einnig er hægt að skrá sig á staðnum. 

Námskeiðið stendur frá 9-12 og þurfa iðkendur að taka hollt og gott nesti með sér.