Sveinn Aron í U19

Þorvaldur Örlygsson þjálfari U19 ára landsliðs karla valdi á dögunum leikmannahóp fyrir undankeppni EM 2017 sem haldin verður í Úkraníu dagana 4.-12. október næstkomandi.

Í hópnum er Sveinn Aron Guðjohnsen leikmaður Vals sem æfir tvívegis með liðinu áður en þeir halda ytra þann 4. október.

Valur.is óskar Sveini til hamingju með valið og óskar honum góðs gengis með landsliðinu.