Valur - Haslum í Áskorendabikar EHF á laugardaginn í Valshöllinni

Laugardag 19. nóvember kl. 16:00 leikur Valur gegn Haslum frá Noregi í Áskorandabikar EHF í Valshöllinni að Hlíðarenda. Með Haslum leika 2-3 norskir landsliðsmenn og þekktastur þeirra er án efa Elend Marmelund fyrrum leikmaður Kiel, Flensburg, Montpollier auk fleiri liða. Handknattleiksdeild Vals býður öllum handboltaunnendum frítt á leikinn á meðan húsrúm leyfir.

Mætum í Valshöllina og styðjum við bakið á okkar mönnum.

Bendum á að leikurinn er ekki sýndur í sjónvarpi.