"Valur heillar mig alltaf", Kristín Ýr Bjarnadóttir ráðinn aðstoðarþjálfari mfl.kvenna í knattspyrnu.

 Kristín Ýr Bjarnadóttir, knattspyrnukona góðkunna, hefur verið ráðin aðstoðarþjálfari mfl.kvenna hjá Val. Kristín á 183 mfl.leiki að baki fyrir Val en stígur nú á hliðarlínuna. Kristín Ýr hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals.

"Það sem heillar mig alltaf er Valur. Nú þegar ég hef verið leikmaður í klúbbnum í 20 ár er ferillinn á enda og ný verkefni taka við. Ég er svo heppin að geta haldið áfram að vera hluti af þessu frábæra liði sem þjálfari. Og fyrir það er ég ótrúlega þakklát. Að ná árangri með Val er það sem ég þrái í dag og alla daga.

Komandi tímabil leggst rosalega vel í mig. Ég finn fyrir ferskum anda í liðinu og miklum metnaði. Úlfur hefur komið með rosalegan meðbyr með sér. Mér datt ekki í hug að ég mundi taka að mér þjálfun á þessu stigi en hann náði að smita mig af þvílíkum metnaði og áhuga frá fyrsta fundi.

Við höfum verið á uppleið síðustu misseri og ég trúi því að við höldum áfram - hærra. Hugarfar leikmanna og metnaður er einnig á hæsta leveli. Þar sem Valur á heima.
Pepsi skórnir eru komnir alveg á hilluna. Nú verða það bara Copa Mundial í boðvanginum. Sjáum til með aðrar skótegundir þegar sólin fer að skína og stirðir liðir mýkjast. En þjálfunin er númer 1,2 og 3 núna", sagði Kristín Ýr að lokum við Val.is